Tónlistarskólinn er fyrir öll
4. september 2025
Tónlist fer ekki í manngreinarálit
Í ljósi umræðna á Íslandi og reyndar um allan heim undanfarið er mikilvægt að muna að tónlist er fyrir öll kyn hvernig svo sem þau skilgreina sig.
Menntastofnun eins og Tónlistarskóli Fjarðabyggðar má aldrei fara í manngreinarálit út frá kyni, þjóðerni, litarhætti, félagslegri stöðu, fötlun eða nokkru öðru.
Tónlist er eitthvað það mikilvægasta sem sameinar okkur öll og er vettvangur fyrir okkur öll til að vinna saman á jafnréttisgrundvelli. Umburðarlyndi og samvinna eru meginstoðir í starfi Tónlistarskóla Fjarðabyggðar.


Eftir Valdimar Másson
•
27. febrúar 2026
Blásarasveit Tónlistarskólans hélt alveg stórkostlega tónleika í Egilsbúð fimmtudaginn 26. febrúar. Á efnisskrá voru popp og rokklög frá ýmsum tímum allt frá Grýlunum til Jeff Who. Árni Pétur Árnason sýndi snilldar tilþrif á básúnuna í laginu Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin töfraði fram hvert lagið á fætur öðru og uppskar standandi fagnaðarlæti í lokin. Hildur Þórðardóttir stjórnaði hljómsveitinni og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt starf.
Eftir Valdimar Másson
•
28. apríl 2025
Nú er komin í loftið ný heimasíða Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Hún er stöðugt í þróun og smám saman koma fleiri upplýsingar inn. Nú eru helstu upplýsingar komnar s.s. skóladagatal, skólanámskrá, upplýsingar um kennara, skólareglur, viðburðir, fréttir úr starfinu og fleira.

28. apríl 2025
Tónlistarskóli Fjarðabyggðar fékk góða gesti í heimsókn föstudaginn 25. apríl. Það voru skólastjóri og kennarar frá Tónlistarskóla Vesturbyggðar. Dagurinn hófst á heimsókn í Tónlistarskólann í Neskaupstað. Þar var starfsemi Tónlistarskóla Fjarðabyggðar kynnt og hvernig starfið fer fram. Nokkrir nemendur Tónlistarskóla Fjarðabyggðar komu og léku fyrir gestina og endaði heimsóknin í Neskaupstað á því að kennarar og nemendur spiluðu nokkur lög saman. Þaðan var haldið í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði og aðstaðan skoðuð og starfsemin kynnt. Því næst lá leið hópsins í Tónlistarskólann á Fáskrúðsfirði þar sem aðstaðan var skoðuð og umræður sköpuðust um faglegt starf tónlistarskóla almennt. Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði var meðal viðkomustaða og þar tók á móti okkur starfsfólk hennar og leiddi hópinn um húsið og sýndi hvaða starfsemi er í gangi þar en hún er býsna fjölbreytt. Vinny Wood upptökustjóri í Stúdíó Síló tók á móti hópnum og sagði frá uppbyggingunni og starfsemi upptökuversins. Þar hitti hópurinn líka hljómsveitina BSÍ sem var við upptökur. Dagurinn endaði með sameiginlegum kvöldverði á kaffihúsinu Hamri á Breiðdalsvík.







