Skólabyrjun
Nú er Tónlistarskólinn að fara af stað. Kennarar og stjórnendur eru í óða önn að undirbúa nýtt skólaár og hlakka til. Kennsla í Tónlistarskólanum hefst miðvikudaginn 26. ágúst en kennarar munu verða í sambandi í þessari viku til að bjóða foreldrum og nemendum til sín í smá viðtal eftir helgina.


Eftir Valdimar Másson
•
5. nóvember 2026
*** Tónleikum frestað um óákveðinn tíma*** Um þessar mundir höldum við upp á 70 ára afmæli tónlistarkennslu í Neskaupstað. Tónlistarkennsla í Neskaupstað á sér langa sögu og hefur verið mjög öflug eins og sést á þeirri grósku sem er í tónlistarlífi í Neskaupstað. Tónskóli Neskaupstaðar hefur um áratugi haldið uppi fjölbreyttri tónlistarkennslu og gerir enn þó að það sé undir merkjum Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Þann 14. nóvember kl. 16:00 verða afmælistónleikar í Egilsbúð í tilefni þessara tímamóta. Þar munu koma fram núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar Tónskóla Neskaupstaðar og flytja fjölbreytta dagskrá. Fram koma hljómsveitin Ózon, blásarasveit Tónlistarskólans, barnakór og margir fleiri. Eftir tónleikana verður boðið upp á léttar veitingar fyrir tónleikagesti. Einnig munu verða til sýnis myndir úr skólastarfinu frá ýmsum tímum. Vonandi sjá allir sér fært að mæta á tónleikana og hlusta á skemmtilega tónlist og rifja upp sögu tónlistarkennslu í Neskaupstað. Aðgangur er ókeypis. Afmælistónleikarnir eru rausnarlega styrktir af SÚN og Fjarðabyggð.

Eftir Valdimar Másson
•
29. apríl 2026
Nú eru framundan fjölmargir vortónleikar Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Þeir verða sem hér segir: 5. maí kl. 17:00 í Egilsbúð Neskaupstað tónleikar nemenda í klassísku námi. 6. maí kl. 17:00 í Egilsbúð Neskaupstað tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir 12. maí kl. 17:00 í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði 19. maí kl. 17:00 í Frystihúsinu á Breiðdalsvík 20. maí kl. 17:00 í skólanum á Reyðarfirði tónleikar nemenda í klassísku námi 20. maí kl. 19:00 í skólanum á Reyðarfirði tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir 21. maí kl. 17:00 í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði tónleikar nemenda í klassísku námi 21. maí kl. 19:00 í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir Öll eru velkomin og aðgangur er ókeypis.

Eftir Valdimar Másson
•
18. apríl 2026
Uppskeruhátíð tónlistarskólanna - Nótan var haldin um allt land 18. apríl. Svæðistónleikar Nótunnar á Austurlandi fóru fram í Miklagarði á Vopnafirði að þessu sinni. Um 30 nemendur tónlistarskólanna á Austurlandi tóku þátt og átti Tónlistarskóli Fjarðabyggðar sex þeirra. Fyrir hönd Tónlistarskóla Fjarðabyggðar tóku þátt þau Baldur Einþór Jónsson, Birgir Hrafn Valdimarsson, Ísabel Ómarsdóttir, Júlíanna Líf Helgadóttir, Hólmfríður Lilja Gunnarsdóttir og Victoria Rut Smáradóttir. Ísabel lék einleik á píanó og Júlíanna lék einleik á þverflautu. Baldur, Birgir, Hólmfríður og Victoria skipuðu hljómsveitina Karmaland sem fluttu lögin Karma Police (Radiohead) og Go your own way (Fleetwood Mac) Öll stóðu þau sig virkilega vel og voru til mikils sóma.

Eftir Valdimar Másson
•
27. febrúar 2026
Blásarasveit Tónlistarskólans hélt alveg stórkostlega tónleika í Egilsbúð fimmtudaginn 26. febrúar. Á efnisskrá voru popp og rokklög frá ýmsum tímum allt frá Grýlunum til Jeff Who. Árni Pétur Árnason sýndi snilldar tilþrif á básúnuna í laginu Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin töfraði fram hvert lagið á fætur öðru og uppskar standandi fagnaðarlæti í lokin. Hildur Þórðardóttir stjórnaði hljómsveitinni og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt starf.






