Afmælishátíð í Neskaupstað
*** Tónleikum frestað um óákveðinn tíma***
Um þessar mundir höldum við upp á 70 ára afmæli tónlistarkennslu í Neskaupstað.
Tónlistarkennsla í Neskaupstað á sér langa sögu og hefur verið mjög öflug eins og sést á þeirri grósku sem er í tónlistarlífi í Neskaupstað. Tónskóli Neskaupstaðar hefur um áratugi haldið uppi fjölbreyttri tónlistarkennslu og gerir enn þó að það sé undir merkjum Tónlistarskóla Fjarðabyggðar.
Þann 14. nóvember kl. 16:00 verða afmælistónleikar í Egilsbúð í tilefni þessara tímamóta. Þar munu koma fram núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar Tónskóla Neskaupstaðar og flytja fjölbreytta dagskrá. Fram koma hljómsveitin Ózon, blásarasveit Tónlistarskólans, barnakór og margir fleiri.
Eftir tónleikana verður boðið upp á léttar veitingar fyrir tónleikagesti. Einnig munu verða til sýnis myndir úr skólastarfinu frá ýmsum tímum.
Vonandi sjá allir sér fært að mæta á tónleikana og hlusta á skemmtilega tónlist og rifja upp sögu tónlistarkennslu í Neskaupstað. Aðgangur er ókeypis.
Afmælistónleikarnir eru rausnarlega styrktir af SÚN og Fjarðabyggð.











