Nótan

18. apríl 2026

Uppskeruhátíð tónlistarskólanna - Nótan var haldin um allt land 18. apríl. Svæðistónleikar Nótunnar á Austurlandi fóru fram í Miklagarði á Vopnafirði að þessu sinni. Um 30 nemendur tónlistarskólanna á Austurlandi tóku þátt og átti Tónlistarskóli Fjarðabyggðar sex þeirra.

Fyrir hönd Tónlistarskóla Fjarðabyggðar tóku þátt þau Baldur Einþór Jónsson, Birgir Hrafn Valdimarsson, Ísabel Ómarsdóttir, Júlíanna Líf Helgadóttir, Hólmfríður Lilja Gunnarsdóttir og Victoria Rut Smáradóttir.

Ísabel lék einleik á píanó og Júlíanna lék einleik á þverflautu. Baldur, Birgir, Hólmfríður og Victoria skipuðu hljómsveitina Karmaland sem fluttu lögin Karma Police (Radiohead) og Go your own way (Fleetwood Mac)

Öll stóðu þau sig virkilega vel og voru til mikils sóma.


Eftir Valdimar Másson 27. febrúar 2026
Blásarasveit Tónlistarskólans hélt alveg stórkostlega tónleika í Egilsbúð fimmtudaginn 26. febrúar. Á efnisskrá voru popp og rokklög frá ýmsum tímum allt frá Grýlunum til Jeff Who. Árni Pétur Árnason sýndi snilldar tilþrif á básúnuna í laginu Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin töfraði fram hvert lagið á fætur öðru og uppskar standandi fagnaðarlæti í lokin. Hildur Þórðardóttir stjórnaði hljómsveitinni og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt starf.
Eftir Valdimar Másson 16. febrúar 2026
Starfsdagur kennara verður í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar miðvikudaginn 18 febrúar og vetrarfrí 19. og 20. febrúar. Engin kennsla verður þessa daga. Við vonum að allir nemendur og kennarar njóti vel.
Eftir Valdimar Másson 12. desember 2025
Jólakveðja
Eftir Valdimar Másson 22. október 2025
Vetrarfrí
Eftir Valdimar Másson 18. september 2025
300 nemendur í Tónlistarskólanum
Eftir Valdimar Másson 9. september 2025
Getum ekki bætt við nemendum í bili
Eftir Valdimar Másson 4. september 2025
Tónlist fer ekki í manngreinarálit
Eftir Valdimar Másson 22. ágúst 2025
Kennsla hefst 26. ágúst
9. maí 2025
Nýtt fyrirkomulag í Neskaupstað
Eftir Valdimar Másson 28. apríl 2025
Nú er komin í loftið ný heimasíða Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Hún er stöðugt í þróun og smám saman koma fleiri upplýsingar inn. Nú eru helstu upplýsingar komnar s.s. skóladagatal, skólanámskrá, upplýsingar um kennara, skólareglur, viðburðir, fréttir úr starfinu og fleira.
Show More