Fullt á haustönn

9. september 2025

Getum ekki bætt við nemendum í bili

Það hefur verið mikil og góð aðsókn í tónlistarnám við Tónlistarskólann á haustönninni og nú er svo komið að skólinn getur ekki tekið við nýjum nemendum á haustönn. Hins vegar eru allar umsóknir um nám sem við getum ekki orðið við enn virkar og við tökum inn nýja nemendur ef aðstæður breytast. Einnig er ólíklegt að hægt sé að breyta um námsleið eða kennara vegna þess að allir kennarar eru komnir með fulla stundaskrá.

Eftir Valdimar Másson 27. febrúar 2026
Blásarasveit Tónlistarskólans hélt alveg stórkostlega tónleika í Egilsbúð fimmtudaginn 26. febrúar. Á efnisskrá voru popp og rokklög frá ýmsum tímum allt frá Grýlunum til Jeff Who. Árni Pétur Árnason sýndi snilldar tilþrif á básúnuna í laginu Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin töfraði fram hvert lagið á fætur öðru og uppskar standandi fagnaðarlæti í lokin. Hildur Þórðardóttir stjórnaði hljómsveitinni og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt starf.
Eftir Valdimar Másson 16. febrúar 2026
Starfsdagur kennara verður í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar miðvikudaginn 18 febrúar og vetrarfrí 19. og 20. febrúar. Engin kennsla verður þessa daga. Við vonum að allir nemendur og kennarar njóti vel.
Eftir Valdimar Másson 12. desember 2025
Jólakveðja
Eftir Valdimar Másson 22. október 2025
Vetrarfrí
Eftir Valdimar Másson 18. september 2025
300 nemendur í Tónlistarskólanum
Eftir Valdimar Másson 4. september 2025
Tónlist fer ekki í manngreinarálit
Eftir Valdimar Másson 22. ágúst 2025
Kennsla hefst 26. ágúst
9. maí 2025
Nýtt fyrirkomulag í Neskaupstað
Eftir Valdimar Másson 28. apríl 2025
Nú er komin í loftið ný heimasíða Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Hún er stöðugt í þróun og smám saman koma fleiri upplýsingar inn. Nú eru helstu upplýsingar komnar s.s. skóladagatal, skólanámskrá, upplýsingar um kennara, skólareglur, viðburðir, fréttir úr starfinu og fleira.
28. apríl 2025
Tónlistarskóli Fjarðabyggðar fékk góða gesti í heimsókn föstudaginn 25. apríl. Það voru skólastjóri og kennarar frá Tónlistarskóla Vesturbyggðar. Dagurinn hófst á heimsókn í Tónlistarskólann í Neskaupstað. Þar var starfsemi Tónlistarskóla Fjarðabyggðar kynnt og hvernig starfið fer fram. Nokkrir nemendur Tónlistarskóla Fjarðabyggðar komu og léku fyrir gestina og endaði heimsóknin í Neskaupstað á því að kennarar og nemendur spiluðu nokkur lög saman. Þaðan var haldið í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði og aðstaðan skoðuð og starfsemin kynnt. Því næst lá leið hópsins í Tónlistarskólann á Fáskrúðsfirði þar sem aðstaðan var skoðuð og umræður sköpuðust um faglegt starf tónlistarskóla almennt. Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði var meðal viðkomustaða og þar tók á móti okkur starfsfólk hennar og leiddi hópinn um húsið og sýndi hvaða starfsemi er í gangi þar en hún er býsna fjölbreytt. Vinny Wood upptökustjóri í Stúdíó Síló tók á móti hópnum og sagði frá uppbyggingunni og starfsemi upptökuversins. Þar hitti hópurinn líka hljómsveitina BSÍ sem var við upptökur. Dagurinn endaði með sameiginlegum kvöldverði á kaffihúsinu Hamri á Breiðdalsvík.
Show More