Þrjúhundruð nemendur

300 nemendur í Tónlistarskólanum

Nú á haustönn eru hvorki meira né minna en þrjú hundruð nemendur skráðir í tónlistarnám við Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Lang flestir nemendur eru á grunnskólaaldri. Það er virkilega gaman að sjá hvað aðsókn að námi í Tónlistarskólann er mikil og stöðug.


Í Tónlistarskólanum er mikil gróska og stöðugt verið að leita leiða til að nemendur geti tekið þátt í ýmiskonar samspili sem eflir áhuga og framfarir. Áfram svona.

Eftir Valdimar Másson 29. apríl 2026
Nú eru framundan fjölmargir vortónleikar Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Þeir verða sem hér segir: 5. maí kl. 17:00 í Egilsbúð Neskaupstað tónleikar nemenda í klassísku námi. 6. maí kl. 17:00 í Egilsbúð Neskaupstað tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir 12. maí kl. 17:00 í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði 19. maí kl. 17:00 í Frystihúsinu á Breiðdalsvík 20. maí kl. 17:00 í skólanum á Reyðarfirði tónleikar nemenda í klassísku námi 20. maí kl. 19:00 í skólanum á Reyðarfirði tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir 21. maí kl. 17:00 í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði tónleikar nemenda í klassísku námi 21. maí kl. 19:00 í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir Öll eru velkomin og aðgangur er ókeypis.
Eftir Valdimar Másson 18. apríl 2026
Uppskeruhátíð tónlistarskólanna - Nótan var haldin um allt land 18. apríl. Svæðistónleikar Nótunnar á Austurlandi fóru fram í Miklagarði á Vopnafirði að þessu sinni. Um 30 nemendur tónlistarskólanna á Austurlandi tóku þátt og átti Tónlistarskóli Fjarðabyggðar sex þeirra. Fyrir hönd Tónlistarskóla Fjarðabyggðar tóku þátt þau Baldur Einþór Jónsson, Birgir Hrafn Valdimarsson, Ísabel Ómarsdóttir, Júlíanna Líf Helgadóttir, Hólmfríður Lilja Gunnarsdóttir og Victoria Rut Smáradóttir. Ísabel lék einleik á píanó og Júlíanna lék einleik á þverflautu. Baldur, Birgir, Hólmfríður og Victoria skipuðu hljómsveitina Karmaland sem fluttu lögin Karma Police (Radiohead) og Go your own way (Fleetwood Mac) Öll stóðu þau sig virkilega vel og voru til mikils sóma.
Eftir Valdimar Másson 27. febrúar 2026
Blásarasveit Tónlistarskólans hélt alveg stórkostlega tónleika í Egilsbúð fimmtudaginn 26. febrúar. Á efnisskrá voru popp og rokklög frá ýmsum tímum allt frá Grýlunum til Jeff Who. Árni Pétur Árnason sýndi snilldar tilþrif á básúnuna í laginu Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin töfraði fram hvert lagið á fætur öðru og uppskar standandi fagnaðarlæti í lokin. Hildur Þórðardóttir stjórnaði hljómsveitinni og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt starf.
Eftir Valdimar Másson 16. febrúar 2026
Starfsdagur kennara verður í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar miðvikudaginn 18 febrúar og vetrarfrí 19. og 20. febrúar. Engin kennsla verður þessa daga. Við vonum að allir nemendur og kennarar njóti vel.
Eftir Valdimar Másson 12. desember 2025
Jólakveðja
Eftir Valdimar Másson 22. október 2025
Vetrarfrí
Eftir Valdimar Másson 9. september 2025
Getum ekki bætt við nemendum í bili
Eftir Valdimar Másson 4. september 2025
Tónlist fer ekki í manngreinarálit
Eftir Valdimar Másson 22. ágúst 2025
Kennsla hefst 26. ágúst
9. maí 2025
Nýtt fyrirkomulag í Neskaupstað
Show More