Næsta skólaár og umsóknir
Nýtt fyrirkomulag í Neskaupstað
Nú fara í hönd lokavikur starfsárs Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Þeir nemendur sem vilja halda áfram í sama námi og þeir hafa verið í þurfa EKKI að sækja um skólavist á næsta skólaári heldur eru þeir sjálfkrafa skráðir áfram í nám. Aftur á móti þurfa þeir nemendur sem vilja breyta sínum námsleiðum t.d. auka við námið, minnka eða skipta um hljóðfæri að láta okkur í Tónlistarskólanum vita af því.
Þetta fyrirkomulag hefur verið viðhaft allsstaðar í Fjarðabyggð nema í Neskaupstað og viljum við breyta því þar. Þannig þurfa nemendur í Neskaupstað ekki að innrita sig fyrir næsta skólaár en láta vita af breytingum. Einfaldast er að tilkynna breytingar í netfangið tonlistarskoli@fjardabyggd.is


Eftir Valdimar Másson
•
29. apríl 2026
Nú eru framundan fjölmargir vortónleikar Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Þeir verða sem hér segir: 5. maí kl. 17:00 í Egilsbúð Neskaupstað tónleikar nemenda í klassísku námi. 6. maí kl. 17:00 í Egilsbúð Neskaupstað tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir 12. maí kl. 17:00 í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði 19. maí kl. 17:00 í Frystihúsinu á Breiðdalsvík 20. maí kl. 17:00 í skólanum á Reyðarfirði tónleikar nemenda í klassísku námi 20. maí kl. 19:00 í skólanum á Reyðarfirði tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir 21. maí kl. 17:00 í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði tónleikar nemenda í klassísku námi 21. maí kl. 19:00 í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði tónleikar nemenda í rytmísku námi - hljómsveitir Öll eru velkomin og aðgangur er ókeypis.

Eftir Valdimar Másson
•
18. apríl 2026
Uppskeruhátíð tónlistarskólanna - Nótan var haldin um allt land 18. apríl. Svæðistónleikar Nótunnar á Austurlandi fóru fram í Miklagarði á Vopnafirði að þessu sinni. Um 30 nemendur tónlistarskólanna á Austurlandi tóku þátt og átti Tónlistarskóli Fjarðabyggðar sex þeirra. Fyrir hönd Tónlistarskóla Fjarðabyggðar tóku þátt þau Baldur Einþór Jónsson, Birgir Hrafn Valdimarsson, Ísabel Ómarsdóttir, Júlíanna Líf Helgadóttir, Hólmfríður Lilja Gunnarsdóttir og Victoria Rut Smáradóttir. Ísabel lék einleik á píanó og Júlíanna lék einleik á þverflautu. Baldur, Birgir, Hólmfríður og Victoria skipuðu hljómsveitina Karmaland sem fluttu lögin Karma Police (Radiohead) og Go your own way (Fleetwood Mac) Öll stóðu þau sig virkilega vel og voru til mikils sóma.

Eftir Valdimar Másson
•
27. febrúar 2026
Blásarasveit Tónlistarskólans hélt alveg stórkostlega tónleika í Egilsbúð fimmtudaginn 26. febrúar. Á efnisskrá voru popp og rokklög frá ýmsum tímum allt frá Grýlunum til Jeff Who. Árni Pétur Árnason sýndi snilldar tilþrif á básúnuna í laginu Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin töfraði fram hvert lagið á fætur öðru og uppskar standandi fagnaðarlæti í lokin. Hildur Þórðardóttir stjórnaði hljómsveitinni og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt starf.







