Tónlistarskólinn í samstarfi við Grunnskóla Reyðarfjarðar
10. apríl 2025
Fimmtudaginn 10. apríl setti Grunnskóli Reyðarfjarðar á svið leikritið Dýrin í Hálsaskógi. Tvær sýningar voru haldnar svo að allir áhugasamir kæmust til að horfa. Dagurinn var strembinn og voru þrjú rennsli og svo tvær sýningar þann daginn.
Tónlistarskólinn sá um tónlistina og tókst bara vel til.

Eftir Valdimar Másson
•
27. febrúar 2026
Blásarasveit Tónlistarskólans hélt alveg stórkostlega tónleika í Egilsbúð fimmtudaginn 26. febrúar. Á efnisskrá voru popp og rokklög frá ýmsum tímum allt frá Grýlunum til Jeff Who. Árni Pétur Árnason sýndi snilldar tilþrif á básúnuna í laginu Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Hljómsveitin töfraði fram hvert lagið á fætur öðru og uppskar standandi fagnaðarlæti í lokin. Hildur Þórðardóttir stjórnaði hljómsveitinni og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt starf.
Eftir Valdimar Másson
•
28. apríl 2025
Nú er komin í loftið ný heimasíða Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Hún er stöðugt í þróun og smám saman koma fleiri upplýsingar inn. Nú eru helstu upplýsingar komnar s.s. skóladagatal, skólanámskrá, upplýsingar um kennara, skólareglur, viðburðir, fréttir úr starfinu og fleira.












